Nýlega prófuðum við þjónustu sem ábyrgist öruggt sæti á fyrstu síðu Google fyrir einn af fimm leitarfrösum. Þetta var áhugavert og vel þess virði að prófa það sérstaklega þegar hægt var að fá endurgreitt ef það skilaði ekki árangri. Við prófuðum þetta á nýjum vef sem heitir www.icelandforsale.com og í stuttu máli þá er vefurinn núna á fyrstu síðu Google, ekki bara fyrir einn leitarfrasa af fimm, heldur alla fimm leitarfrasana og meira til.
Samtökin Golf Iceland fengu Ráðgjöf.net til að hanna og setja upp vef fyrir starfssemina og markaðssetja vefinn á netinu. Samtökin voru stofnuð vorið 2008 með aðild flestra 18 holu golfvalla á Íslandi, Golfsambands Íslands, Ferðamálastofu og nokkrum af stærstu ferðaþjónustufyrirtækjum landsins.
Tilgangur samtakanna er að markaðssetja golf og ferðaþjónustu á Íslandi. Vefurinn er nú með PR 5 og kemur upp á fyrstu síðu Google fyrir 7 bestu leitarstrengina fyrir golf á Íslandi. Smelltu á Golf in Iceland til að skoða vefinn.
Ein besta aðferðin í dag til að láta vefsvæði birtast fremst í leitarniðurstöðum leitarvéla er að auka tenglavinsældir (Linkpopularity). Góðir tenglar frá virtum vefsvæðum tryggja þér ekki bara fleiri heimsóknir áhugasamra viðskiptavina, heldur hafa þeir bein áhrif á stöðu vefsvæðisins hjá leitarvélunum.
Fjöldi og gæði tengla ákvarðar hve hátt vefurinn skorar. Því fleiri tenglar sem vísa á vefsvæði þitt, og því vandaðri sem þeir eru, því hærra fer það. Ef vefsvæði þitt er með fleiri tengla og í betri gæðum en önnur vefsvæði, þá fer það beint í fyrsta sæti leitarvélarinnar, svo einfalt er það.
Þetta kann að hljóma ótrúlega, en svona eru reglurnar, og það er einfalt að sýna fram á það. Þau vefsvæði sem skora hæst fyrir tiltekna leitarfrasa hafa unnið hörðum höndum við að útvega tengla í miklu magni. Og þar sem þessi vinna er mjög tímafrek eru sumir með herskara manna sem gera ekkert annað allan daginn en að finna og útvega tengla. Heilu starfsstéttirnar hafa sprottið upp í kringum þessa starfssemi síðustu ár.
Hér á landi er þetta á fárra vitorði, þeir sem vita þetta tala lítið um það og reyna helst að draga úr allri slíkri umræðu, eða gera lítið úr henni, því það eru svo miklir hagsmunir í húfi. Fjölmargar kannanir hafa sýnt fram á að þrjár fyrstu leitarniðurstöður leitarvélanna fá langmestu traffíkina, og mestu viðskiptin. Það er því gríðarlega mikils virði að vera í einu af þremur fyrstu sætunum á Google fyrir sín bestu leitarorð.
Og nú hefur þú möguleika á því.
Við höfum náð afar hagstæðum samningum við stór erlend samtök vefstjóra sem geta útvegað öfluga "SEO" tengla fyrir þá sem vilja koma vefsvæðum sínum í fremstu röð leitarvélanna.
Byrjaðu strax og láttu tímann vinna með þér.
Nánari upplýsingar fást hjá Garðari Garðarssyni í síma 691 2225 eða í
Tæknileg atriði fyrir vefstjóra:
3 textatenglar með 3 mismunandi leitarfrösum eru settir í hverja grein eða fréttatilkynningu.
Allir tenglarnir eru einstefnutenglar "one-way" þ.e. það þarf akki að útvega baktengla.
Síðurnar sem tenglarnir eru settir á eru allar á mismunandi C-class IP tölum til þess að hámarka gæði og vægi tenglanna.
Titill síðunnar sem tengillinn birtist á inniheldur mikilvægasta leitarfrasann.
Hægt er að "spinna" texta í sömu grein til þess að engin grein sé eins.
Nánari upplýsingar fást hjá Garðari í síma 691 2225 eða
Nýr vefur ferðakorta
Ráðgjöf.net í samstarfi við Þorvald Bragason var fengin til að hanna og setja upp vefsíðu fyrir Ferðakort.is til að kynna vörur og þjónustu Ferðakorta. Á vefsíðunni eru ýmsar gagnlegar upplýsingar um kortaflokka og helstu útgáfur fyrirtækisins, auk frétta af starfseminni. Þar er hægt að komast í samband við fyrirtækið m.a. til að gera pantanir o.fl. Vefsíðan verður með texta bæði á íslensku og ensku.
Þann 24. ágúst s.l. opnaði Mímir-símenntun nýjan efnismikinn vef fyrir starfssemi sína á vefslóðinni www.mimir.is, en fyrirtækið er einkahlutafélag sem starfar á sviði fullorðinsfræðslu og starfsmenntunar. Ráðgjöf.net sá um tæknivinnu, hönnun og uppsetningu vefsins, sem byggir á margverðlaunuðu aðþjóðlegu vefumsjónarkerfi.
Á vefnum er að finna upplýsingar um yfir 140 námskeið, sem flokkuð eru í 22 undirflokka eftir efni, tíma, staðsetningu og tegund. Boðið er upp á 46 íslenskunámskeið á mismunandi stigum og geta íslendingar valið úr 17 tungumálanámskeiðum á mörgum stigum ásamt fjölmörgum öðrum námskeiðum fyrir alla aldurshópa.
CCP hefur sett sér það markmið að ná 300.000 áskrifendum að EVE Online fyrir árslok 2007. Fyrirtækið stendur fyrir gríðarlega öflugu markaðsstarfi og hefur samið við Ráðgjöf.net um að ná inn nýjum viðskiptavinum í samstarfi við nokkur alþjóðleg fyrirtæki. Með þessu móti mun CCP fá aðgang að nýjum markhópum sem hafa virkan áhuga á vörum og þjónustu félagsins.
Samvinna hagsmunaaðila um móttöku skemmtiferðaskipa
Cruise Iceland samtökin fengu Ráðgjöf.net til að hanna og setja upp glæsilegan vef fyrir starfssemina en samtökin eru hluti af starfssemi Ferðamálastofu. Tilgangur samtakanna er að auka samvinnu allra sem hagsmuna eiga að gæta vegna móttöku skemmtiferðaskipa hérlendis.
Lausnir fyrir þá sem eru í byggingar- eða breytingarhugleiðingum
Global House fengu Ráðgjöf.net til að hanna og setja upp glæsilegan vef fyrir starfssemina en fyrirtækið vinnur að heildarlausnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem eru í byggingar- eða breytingarhugleiðingum.
Vefurinn skartar mjög fullkomnu netverslunar- og vörulistakerfi og auðveldar fyrirtækinu að kynna vöruúrvalið á mjög aðgengilegan hátt.
Ný vefgátt fyrir landfræðilegar upplýsingar á Íslandi.
Þorvaldur Bragason landfræðingur fékk Ráðgjöf.net til að hanna og setja upp vefsvæðið landakort.is en það er ný vefgátt fyrir landfræðilegar upplýsingar á Íslandi. Birtir eru tenglar í vefsíður sem sýna kortagögn og annað landfræðilegt efni innanlands sem utan. Vefsíðunum er raðað eftir völdum efnisflokkum sem aðgengilegir eru á forsíðu, en stutt skýring fylgir hverri skráningu. Jafnframt eru birtar fréttir um það sem helst er að gerast hér á landi í útgáfumálum korta og landupplýsingaþjónustu á Netinu.
Ráðgjöf.net og Samtök verslunar og þjónustu hafa gert með sér samkomulag um hönnun, uppsetningu og vistun á vefsíðum fyrir aðildarfyrirtæki SVÞ undir sameiginlega heitinu veftorg.is.
Ráðgjöf.net og Iceland Excursions Allrahanda ehf. hafa undirritað samstarfssamning þess efnis að Ráðgjöf.net sjái um að auka sýnileika icelandexcursions.is á netinu.
Mun markaðsátakið aðallega miðast við sýnileika vefsins í Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi auk þess að fylgst verður með sýnileika vefsins í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Frakklandi og Hollandi.
Oddi semur við Ráðgjöf.net
Prentsmiðjan Oddi og Ráðgjöf.net hafa undirritað samstarfssamning þess efnis að Ráðgjöf.net sjái um markaðssetningu oddi.com á netinu.
Mun markaðsátakið miða að því að auka sýnileika oddi.com á 84 leitarvélum í Bandaríkjunum fyrir 5 megin þjónustuflokka prentsmiðjunnar.
KB banki semur við Ráðgjöf.net
Ráðgjof.net og Kaupþing Búnaðarbanki hf. hafa undirritað samstarfssamning þess efnis að Ráðgjöf.net sjái um markaðssetningu kaupthing.lu á netinu.
Mun markaðsátakið miða að því að auka sýnileika kaupthing.lu á 42 leitarvélum í Svíþjóð, Danmörku og Bretlandi fyrir megin þjónustuflokka fyrirtækisins.
Hótel Holt semur við Ráðgjöf.net
Ráðgjöf.net og Hótel Holt hafa undirritað samstarfssamning þess efnis að Ráðgjöf.net sjái um markaðssetningu holt.is á netinu.
Mun markaðsátakið miða að því að auka sýnileika holt.is á 43 leitarvélum í Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi og Bandaríkjanna fyrir megin þjónustuflokka hótelsins.