Liggja allar leiðir til þín?

Vilt þú að viðskiptavinir finni þínar vörur fyrst, á undan vörum samkeppninnar?

Við höfum hjálpað fjölmörgum stórum og smáum fyrirtækjum við að koma vefsíðum þeirra í efstu sæti stærstu leitarvélanna á þann hátt að helstu markhópar þeirra finni þá fljótt og örugglega. Vefsíður þessara fyrirtækja koma efst í leitarniðurstöðum fyrir bestu og arðvænlegustu leitarstrengina þeirra.

Hvað eru leitarstrengir?

Til þess að finna tiltekna vöru eða þjónustu á netinu þá notar fólk leitarstrengi sem eru lýsandi fyrir þá vöru eða þjónustu sem það leitar að. Þessir leitarstrengir eru eins og skínandi vitar sem stýra kúnnanum í örugga höfn.

Vilt þú ekki að það sé þín höfn og þín vara?

Ef þessi leitarstrengur er ekki á vefnum þínum þá kemur vefurinn ekki upp í leitarniðurstöðunni. Vefurinn er því nánast ósýnilegur og viðskiptavinurinn finnur þig ekki.

Vilt þú vita hvað 10 stærstu samkeppnisaðilar þínir eru að gera á netinu, svo þú getir gert betur? Við getum sagt þér nákvæmlega hvað þeir eru að gera. Hver styrkur þeirra er og veikleikar, hvar þeir eru staddir á leitarvélunum, hvaða leitarstrengi þeir eru að nota, fjöldi auglýsingaherferða, hvað þeir eru að borga fyrir auglýsingar o.fl. o.fl.

Viðskiptavinir okkar eru fyrirtæki í fremstu röð á netinu. Meðal þeirra má nefna: Oddi, Marel, Össur, Hótel Holt, Landmælingar Íslands, Ferðamálaráð Íslands, Lax-á o.fl.

Hafðu samband núna og við finnum leiðir til að margfalda viðskiptin ykkar. Láttu okkur koma þér í fremstu röð á netinu, náðu forskoti á samkeppnina og fáðu til þín bestu kúnnana... núna.