|
Á síðastliðnum 12 árum höfum við komið að fjölmörgum vefþjónustuverkefnum fyrir stór og smá íslensk og erlend fyrirtæki. Þjónusta okkar er tvíþætt. Í fyrsta lagi kemur til ráðgjöf og greining þar sem farið er yfir alla þætti sem skipta máli í markaðssetningu hvers vefs og þeir skilgreindir og útlistaðir. Í öðru lagi eru það markaðsaðgerðir þegar fyrirtæki velja að láta okkur sjá um afmörkuð verk í framkvæmd markaðssetningarinnar.
Meðal helstu verkefna má nefna
- Yfirumsjón vefhönnunardeildar og verkstjórnun hugbúnaðardeildar Nýherja.
- Ráðgjöf og verkstjórnun vefþjónustuverkefna hjá Hugviti.
- Hönnun og forritun vefsvæða fyrir ýmis fyrirtæki og stofnanir.
- Umsjón sölu- og markaðssetningar á vörum og þjónustu á netinu á innlendum og erlendum markaði fyrir fjölmörg stór og smá fyrirtæki.
- Hönnun auglýsingaborða fyrir fjölmörg stór og smá fyrirtæki í samvinnu við femin.is
- Uppsetning, umsjón og rekstur fjölmargra innlendra og erlendra vefsvæða og netverslana.
Meðal viðskiptavina
Meðal viðskiptavina okkar má nefna KB banka, Marel, Össur, SR-Mjöl, Hótel Holt, Ferðamálaráð Íslands, Prentsmiðju Odda o.fl. o.fl.
Hafðu samband
Hafðu samband núna og við sýnum þér hvernig þú getur margfaldað viðskiptin á netinu. Láttu okkur koma þér í fremstu röð á netinu, náðu forskoti á samkeppnina og fáðu til þín bestu kúnnana.
Við erum einnig tilbúnir til þess að koma í stutta heimsókn og skoða með hvaða hætti markaðssetning á netinu gæti hentað ykkar fyrirtæki.
|