Heimasíður fyrir lítil fyrirtæki í SVÞ

ImageRáðgjöf.net og Samtök verslunar og þjónustu hafa gert með sér samkomulag um hönnun, uppsetningu og vistun á vefsíðum fyrir aðildarfyrirtæki SVÞ undir sameiginlega heitinu veftorg.is.

 Þessi þjónusta er sérstaklega ætluð litlum fyrirtækjum innan samtakanna sem eru núna með frumstæðar heimasíður eða hafa ekki treyst sér til að setja upp eigin síður.

Allir þátttakendur fá nákvæmar notendaleiðbeiningar og haldið verður stutt námskeið fyrir þá sem þess óska (lágmark 10 á námskeiði). Stjórnborð og leiðbeiningar vefsins verða á íslensku.

Skrifstofa SVÞ veitir allar nánari upplýsingar.