Nýr vefur Mímis-símenntunar

Þann 24. ágúst s.l. opnaði Mímir-símenntun nýjan efnismikinn vef fyrir starfssemi sína á vefslóðinni www.mimir.is, en fyrirtækið er einkahlutafélag sem starfar á sviði fullorðinsfræðslu og starfsmenntunar. Ráðgjöf.net sá um tæknivinnu,  hönnun og uppsetningu vefsins, sem byggir á margverðlaunuðu aðþjóðlegu vefumsjónarkerfi.

Á vefnum er að finna upplýsingar um yfir 140 námskeið, sem flokkuð eru í 22 undirflokka eftir efni, tíma, staðsetningu og tegund. Boðið er upp á 46 íslenskunámskeið á mismunandi stigum og geta íslendingar valið úr 17 tungumálanámskeiðum á mörgum stigum ásamt fjölmörgum öðrum námskeiðum fyrir alla aldurshópa.  

Vefurinn er gagnvirkur, þannig að notendur geta skráð sig á námskeið, sent inn hugmyndir að nýjum námskeiðum, sent vinum tengil á tiltekið námskeið o.fl. Yfir 265 manns skráðu sig á námskeið í gegnum vefinn fyrstu vikuna og voru 21 íslenskunámskeið orðin full á fyrstu 3 dögunum.

Vefurinn er á íslensku og að hluta til á ensku og pólsku en í vefumsjónarkerfinu er mjög fullkomið þýðingarkerfi sem býður upp á þýðingu alls vefsins eða hluta hans, allt eftir hentugleika. 

Að baki vefnum er gagnagrunnur með fjölbreytta flokkunar- og birtingarmöguleika og innbyggða leitarvél sem auðveldaði uppsetningu öflugs námskeiðs og skráningarkerfis þannig að notendur geti fundið námskeið og þjónustu við hæfi á skömmum tíma og með lítilli fyrirhöfn.

Mímir-símenntun vonast til þess að vefurinn muni efla starfið og fullorðinsfræðslu almennt í landinu og gera verkefni Mímis sýnilegri almenningi og þannig virka sem hvatning til dáða á menntunarsviðinu. Heimasíðan verður einnig hentugur vettvangur um fræðslu og menntun fyrir útlendinga sem vilja læra íslensku, því hægt er að finna upplýsingar á ensku og pólsku á vefnum. Á heimasíðunni geta allir sem vilja mennta sig áfram og læra nýja og skemmtilega hluti fundið eitthvað við sitt hæfi hvort sem það er á sviði lista, menninga, tungumála eða annað.

Smelltu hér til að skoða vefinn.