Vefhönnun

Ráðgjöf.net tekur að sér að hanna og smíða vefi fyrir viðskiptavini sína frá grunni, bæði með því að setja upp sérhannaðan vef í Joomla vefumsjónarkerfinu og smíða viðbótarlausnir, sem fullnægt geta þörfum jafnvel stærstu fyrirtækja.

Hér til hægri eru tenglar á sýnishorn af þeim fjölmörgu grunnútlitstillögum sem við höfum í boði.

Þegar þú hefur fundið útlit sem þér líst á þá gerum við breytingar og lagfæringar á því til þess að samræma það öðru kynningarefni frá fyrirtæki þínu og þörfum og óskum þínum og annarra starfsmanna.